Fara í efni

PocketBook InkPad 4 7,8" lesbretti með íslensku viðmóti, Stardust Silver

46.990 kr 46.990 kr −% −0 kr

  • Framleiðandi

Vörunúmer: PB743G-U-WW

7,8" PocketBook InkPad 4 lesbretti með baklýsingu, innbyggðum hátalara, WiFi, Bluetooth og PocketBook Cloud skýjaþjónustu. Styður Dropbox, ReadRate, Send-to-PocketBook og hljóðbækur. Text-to-Speech skjálesari getur lesið bókina fyrir þig á allt að 26 tungumálum. Lesbrettið er með tveggja kjarna 1GHz örgjörva, 1GB vinnsluminni og 32GB innra geymslupláss og styður 25 bóka- og grafíksnið án umbreytinga. Ókeypis orðabækur bjóða upp á frábæra námsmöguleika.

Frábær 7,8" E Ink Carta™ 1200 snertiskjár með 16 stigum af grátónum, 300PPI og 1404 x 1872px upplausn skilar skýrum texta og þægilegri lestrarupplifun. Aðlagandi SMARTlight gerir þér kleift að sérsníða birtustig og litahitastig skjásins. Eye-Safe hönnun og glampafrír skjár stuðla að þægilegum lestri allan daginn. Lesbrettið er einnig með G-skynjara og hlífarskynjara.

Í PocketBook viðmótinu er Bókaverslun, Bókasafn, Orðabók, Hljóðbækur, Tónlistarspilari, Vafri, Gallerí, Reiknivél, Glósur, RSS fréttir, Skák, Klondike, Scribble og Sudoku. Lesbrettið vegur aðeins 265 g og er vatnshelt, létt og nett, með hliðarstýrihnöppum og USB-C hleðslutengi.

  • Frábær 7,8" E Ink Carta™ 1200 glampafrír snertiskjár
    • 1404 x 1872px upplausn og 300PPI
    • 16 stig af grátónum fyrir skýran texta
    • SMARTlight til að sérsníða birtustig og litahitastig skjásins
    • G-skynjari sem snýr skjámyndinni sjálfkrafa fyrir aukin þægindi við lestur
    • Aukin rispuvörn ver skjáinn við daglega notkun
  • 32GB innra geymslupláss fyrir þúsundir bóka
    • Tveggja kjarna 1GHz örgjörvi og 1GB vinnsluminni tryggja hraða og góða upplifun
    • PocketBook Cloud auðveldar samstillingu og umsýslu bóka
  • WiFi og Bluetooth 4.0 fyrir hljóðbækur
    • Stjórnaðu og samstilltu auðveldlega í gegnum WiFi og skýjaþjónustu
    • Tengist þráðlausum heyrnartólum, hátölurum og öðrum hljóðbúnaði
    • Innbyggður hátalari fyrir hljóðbækur og Text-to-Speech
  • USB-C hleðslutengi og 2000mAh rafhlaða
    • OTG stuðningur fyrir utanáliggjandi geymslu
    • Styður hljóð með 3,5 mm USB-C millistykki
  • Endalausir möguleikar og eiginleikar:
    • 25 snið - Þar á meðal myndasögusnið, Adobe DRM og vinsæl rafbókasnið
    • Bókaverslun - Mikið úrval af bókum og hljóðbókum
    • Bókasöfn - Stuðningur við Adobe DRM fyrir rafbækur frá bókasöfnum
    • Orðabækur - Ókeypis úrval af orðabókum fyrir frábæra námsmöguleika
    • RSS fréttir - Fáðu fréttir beint í lesbrettið
    • Leikir - Skák, Sudoku, kapall og fleira
    • Gallerí - Skoðaðu myndir beint í lesbrettinu
    • Reiknivél - Innbyggð reiknivél fyrir daglega notkun
    • Vafri - Flakkaðu um veraldarvefinn og skoðaðu vefsíður
    • Tónlistarspilari - Innbyggður spilari fyrir tónlist, hlaðvörp og hljóðbækur
  • Sambland af framúrskarandi hönnun og Stardust Silver lit:
    • Snertiskjár - Fyrir allar aðgerðir, flýtivísa og flettingu blaðsíðna
    • Stýrihnappar - Hnappar sem hægt er að nota til að fletta blaðsíðum og fara til baka
    • IPX8 vatnsvörn - Þolir ferskvatn á allt að 2 metra dýpi í allt að 1 klukkustund
    • Fislétt og nett - Aðeins 265 g þrátt fyrir rúmgóðan 7,8" skjá

PocketBook kemur með íslensku viðmóti, ensku eða öðru tungumáli:

  • Íslenskt viðmót - Hægt er að uppfæra PocketBook frá Tölvutek í íslenskt viðmót og sérstaka uppsetningu og flýtileiðir með íslensk bókasöfn í huga.
  • Pólska og yfir 35 önnur tungumál - Hægt er að óska eftir uppfærslu á viðmóti á pólsku eða öðru tungumáli með tölvupósti á sala@tolvutek.is fyrir PocketBook sem keypt er hjá Tölvutek.
  • PocketBook - Sýnir allar bækur á því tungumáli sem viðkomandi bók er gefin út á, hvort sem það er íslenska, enska eða annað tungumál, óháð tungumáli viðmótsins.

Tækniupplýsingar

Framleiðandi PocketBook

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.