Fara í efni

PocketBook Verse Pro 6" lesbretti með íslensku viðmóti, blátt

27.990 kr 27.990 kr −% −0 kr

  • Framleiðandi
  • Geymslurými
  • Skjágerð
  • Vatnsvörn
  • Vinnsluminni tækis
  • Skjáeiginleikar
  • Skjástærðarflokkur (lesbretti)
  • Baklýsing

Vörunúmer: PB634-A-WW

6" PocketBook Verse Pro lesbretti með baklýsingu, WiFi, Bluetooth og PocketBook Cloud skýjaþjónustu. Styður Dropbox, Send-to-PocketBook og hljóðbækur. Text-to-Speech skjálesari getur lesið bókina fyrir þig með náttúrulegri rödd. Lesbrettið er með tveggja kjarna 1GHz örgjörva, 512MB vinnsluminni og 16GB innra geymsluplássi og styður 25 bóka- og grafíksnið án umbreytinga. Ókeypis orðabækur bjóða upp á góða námsmöguleika.

Frábær E Ink Carta™ HD snertiskjár með 16 stigum af grátónum, 300PPI og 1072 x 1448px upplausn skilar skýrum texta og þægilegri lestrarupplifun. Aðlagandi SMARTlight gerir þér kleift að stilla bæði birtustig og litahitastig skjálýsingarinnar.

Í PocketBook viðmótinu er meðal annars Bókaverslun, Bókasafn, Orðabók, Hljóðbækur, Tónlistarspilari, Vafri, Gallerí, Reiknivél, Glósur, RSS fréttir, Skák, Klondike, Scribble og Sudoku. Lesbrettið er vatnshelt, létt og nett tæki með stýrihnöppum og USB-C hleðslutengi. Það vegur aðeins 186 g og rafhlaðan getur enst í allt að einn mánuð eftir notkun, tengingum og stillingum.

  • Frábær 6" E Ink Carta™ HD snertiskjár
    • 1072 x 1448px upplausn og 300PPI
    • 16 stig af grátónum fyrir skýran texta
    • Glampafrí hönnun fyrir þægilegan lestur
    • SMARTlight til að stilla birtu og litahitastig
  • 16GB innra geymslupláss með PocketBook Cloud
    • Tveggja kjarna 1GHz örgjörvi og 512MB vinnsluminni
  • WiFi og Bluetooth 4.0 fyrir hljóðbækur
    • Stjórnaðu og samstilltu bækur í gegnum WiFi og skýjaþjónustu
    • Tengist þráðlausum heyrnartólum og hátölurum
  • USB-C hleðslutengi og allt að eins mánaðar rafhlöðuending
    • Styður hljóð í gegnum USB-C með 3,5 mm millistykki
  • Endalausir möguleikar og eiginleikar:
    • 25 snið - Þar á meðal myndasögusnið og Adobe DRM
    • Bókaverslun - Úrval af bókum og hljóðbókum
    • Bókasöfn - Stuðningur við Adobe DRM fyrir rafbækur frá bókasöfnum
    • Orðabækur - Úrval orðabóka fyrir góða námsmöguleika
    • RSS fréttir - Fáðu fréttir beint í lesbrettið
    • Leikir - Skák, Sudoku, kapall og fleira
    • Gallerí - Skoðaðu myndir beint í lesbrettinu
    • Reiknivél - Innbyggð reiknivél
    • Vafri - Flakkaðu um veraldarvefinn
    • Tónlistarspilari - Fyrir tónlist, hlaðvörp og hljóðbækur
  • Sambland af framúrskarandi hönnun og Azure-lit:
    • Snertiskjár - Fyrir aðgerðir, flýtivísa og flettingu blaðsíðna
    • Stýrihnappar - Hnappar til að fletta blaðsíðum og fara til baka
    • IPX8 vatnsvörn - Þolir ferskvatn á allt að 2 metra dýpi í allt að 1 klukkustund
    • Fislétt og nett - Aðeins 186 g og fellur vel í lófa

PocketBook kemur með íslensku viðmóti, ensku eða öðru tungumáli:

  • Íslenskt viðmót - Hægt er að uppfæra PocketBook frá Tölvutek í íslenskt viðmót með sérstakri uppsetningu og flýtileiðum fyrir íslensk bókasöfn.
  • Pólska og yfir 35 önnur tungumál - Hægt er að óska eftir uppfærslu á viðmóti fyrir PocketBook sem keypt er hjá Tölvutek.
  • PocketBook - Sýnir bækur á því tungumáli sem þær eru gefnar út á, hvort sem það er íslenska, enska eða annað tungumál, óháð tungumáli viðmótsins.

Tækniupplýsingar

Fartölvur
Framleiðandi PocketBook
Annað
Tengimöguleikar USB-C, Wi-Fi, Bluetooth
Sniðstuðningur EPUB, PDF, MOBI, AZW, TXT
Geymslurými 16 GB
Skjágerð E Ink Carta
Vatnsvörn IPX8
Vinnsluminni tækis 512 MB
Skjáeiginleikar Snertiskjár
Skjástærðarflokkur (lesbretti) 6–6,9"
Baklýsing Hlý baklýsing

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.