Fara í efni

Akluer H1-B göngubretti undir skrifborð

93.441 kr 104.990 kr −11% −11.549 kr

  • Framleiðandi

Vörunúmer: H1-B

Akluer H1-B er nett og fjölhæft göngubretti sem hentar einstaklega vel undir skrifborð, heima eða á skrifstofunni. Með því getur þú aukið daglega hreyfingu á meðan þú vinnur, horfir á sjónvarp eða sinnir öðrum verkefnum, en samanbrjótanlegt handfang gerir einnig kleift að nota brettið fyrir hraðari göngu og skokk.

Sjálfvirkur 6 þrepa halli nær allt að 13% og gerir þér kleift að auka álag æfingarinnar án þess að þurfa að auka hraðann. Öflugur 2,5 HP mótor býður upp á hraða frá 1–12 km/klst. og sex laga hlaupabelti ásamt höggdeyfingu stuðlar að þægilegri göngu og minni álagi á liði.

Innbyggður LED skjár sýnir hraða, tíma, vegalengd og hitaeiningar á meðan fjarstýring og stjórntakkar gera þér kleift að breyta stillingum á einfaldan hátt. H1-B þolir allt að 150 kg notanda og með samanbrjótanlegri hönnun og flutningshjólum er auðvelt að ganga frá brettinu þegar það er ekki í notkun.

  • Göngu- og hlaupabretti
  • 6 þrepa sjálfvirkur halli, allt að 13%
  • 2.5 HP mótor fyrir mjúka og stöðuga keyrslu
  • Hraði frá 1–12 km/klst.
  • Hámarksþyngd notanda allt að 150 kg
  • 100x40 cm göngu- og hlaupasvæði
  • LED skjár fyrir hraða, tíma og vegalengd
  • Fjarstýring fyrir einfalda stjórnun
  • Samanbrjótanlegt handfang með tækjahaldara
  • 6 laga hálkuvarið hlaupabelti
  • Innbyggð höggdeyfing fyrir aukin þægindi
  • Flutningshjól auðvelda tilfærslu og geymslu

Tækniupplýsingar

Framleiðandi Akluer

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.