Vörunúmer:
1337197
Gerðu niðurtalninguna til jóla bæði skemmtilega og nytsamlega með Bosch DIY verkfæra aðventudagatalinu. Á bak við 24 hólf leynast vönduð handverkfæri og fylgihlutir sem mynda saman fjölhæft 44 stykkja verkfærasett fyrir heimilið og DIY verkefnin.
Settið inniheldur meðal annars 176 mm vatnsdælutöng, 1/4" skrall, 9 mm dúkahníf, nákvæmnisskrúfjárn og fjölbreytt úrval bita og toppa. Einnig fylgja framlengingar og millistykki sem gera settið hentugt fyrir fjölbreytt smærri viðhalds- og viðgerðarverkefni.
Praktísk taska með rennilás fylgir með svo auðvelt sé að halda verkfærunum saman eftir að öll hólfin hafa verið opnuð. Skemmtileg jólagjöf fyrir heimilisfixarann sem nýtist áfram löngu eftir að hátíðunum lýkur.
- 44 stykkja verkfærasett í 24 hólfum
- 176 mm vatnsdælutöng
- 1/4" skrall og 5 toppar
- 9 mm dúkahnífur og aukablöð
- Nákvæmnisskrúfjárn með 8 bitum
- 8 almennir skrúfbitar
- Framlengingar og millistykki
- Flöskuopnari fylgir með
- Taska með rennilás fyrir verkfærin
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
Tækniupplýsingar
| Framleiðandi | Bosch |





