Vörunúmer:
23393
Trust Maxo er fyrirferðarlítið og öflugt 90W hleðslutæki, sérstaklega hannað fyrir HP fartölvur. Með hleðslutækinu fylgja fjórir tengihausar sem tryggja samhæfni við fjölbreytt úrval HP fartölva. Veldu einfaldlega tengihausinn sem passar við fartölvuna og tengdu hleðslutækið.
Hleðslutækið styður HP fartölvur sem nota 18 til 20V spennu og þurfa allt að 90W afl. Innbyggt Trust Smart Protection öryggiskerfi ver fartölvuna gegn skammhlaupi, ofhitnun og yfirálagi. Hleðslutækið styður 100 til 240V inntaksspennu og hentar því vel á ferðalögum. Þriggja metra snúra veitir gott svigrúm og frágangsólar halda snúrunum snyrtilegum við geymslu.
- Allt að 90W hleðsluafl
- Sérstaklega hannað fyrir HP fartölvur
- Fjórir tengihausar fylgja
- Styður fartölvur sem nota 18 til 20V spennu
- Trust Smart Protection öryggiskerfi
- Vörn gegn skammhlaupi, ofhitnun og yfirálagi
- Styður 100 til 240V inntaksspennu
- Þriggja metra löng snúra
- Frágangsólar halda snúrunum snyrtilegum
- Fyrirferðarlítil og endingargóð hönnun
Athugið: Gæta þarf þess að réttur tengihaus sé notaður og að HP fartölvan styðji 18 til 20V spennu og þurfi ekki meira en 90W afl. Hleðslutækið er ekki með USB-C tengi.
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
Tækniupplýsingar
| Fartölvur | |
|---|---|
| Framleiðandi | Trust |
| Annað | |
|---|---|
| Tegund aukahlutar | Hleðslutæki |
| Tækjagerð | Fartölva |
| Aflflokkur hleðslutækis | 65–99 W |