Vöruflokkar

 

Tölvutek leggur sitt af mörkum með umhverfisstefnu sem er ætlað að gera fyrirtækið umhverfisvænt:

 

Tölvutek er aðili að skilakerfi Samskila sem annast söfnun og endurvinnslu raf- og raftækjaúrgangs í samstarfi við Hringrás, hægt er að nálgast nánari upplýsingar um Samskil á með þvi að smella hér

 

  • Ónýtur rafeindabúnaður og rafhlöður eru sendar í förgun í Hringrás Endurvinnslu.
  • Tóner og blekhylki sem hafa verið notuð innandyra er skilað til framleiðanda.
  • Við tökum tillit til umhverfismála í allri starfsemi okkar og vinnum í anda sjálfbærrar þróunar til að stuðla að bættu umhverfi.
  • Við tryggjum að öllum lagakröfum á sviði umhverfismála verði fullnægt og munum setja okkur strangari kröfur þar sem við á.
  • Við leggjum okkur fram við að efla umhverfisvitund starfsfólks og áhuga þeirra á mikilvægi umhverfismála með reglulegri þjálfun.
  • Áhersla er lögð á góða umgengni við umhverfið, endurnot og endurvinnslu á því sem fellur til í rekstri eins og hægt er en öðru er fargað á viðeigandi hátt.

 

Allir helstu birgjar Tölvutek hafa metnaðarfull markmið í umhverfismálum og hafa vörur sínar og framleiðsluferli vottuð með viðurkenndum umhverfismerkjum, s.s. Bláa englinum, Svaninum, TCO´99, Energy Star, o.fl., og framleiðsluvottun ISO14001.

 

Skipaður umhverfisfulltrúi hjá Tölvutek er Halldór Hrafn Jónsson, rekstrarstjóri.

Nýjasti bæklingurinn

Ný Facebook síða

Opnunartímar

Virka daga 10:00-18:30
Laugardaga 11:00-16:00

Tölvutek Reykjavík | Borgartúni 31 | Sími 563 6900 | sala@tolvutek.is og Tölvutek Akureyri | Undirhlíð 2 | Sími 430 6900 | akureyri@tolvutek.is

 

Lagerstaða er uppfærð alla virka daga kl 10:00 | Öll verð í vefverslun eru með VSK og birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl.

Tölvutek ehf | KT.500806-0950 | VSK númer 91425 | Ábyrgðarskilmálar eru í >> Um okkur >> skilmálar

Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011