
Leiðbeiningar fyrir Android spjaldtölvur.
Hér að neðan eru nokkur heilræði um meðferð og notkunnareiginleika Android spjaldtölvunnar:
- Við fyrstu ræsingu ráðleggjum við þér að stofna „Google Account“ til að virkja „Market“ og „Gmail“ aðgang. Market er stærsta „app“ safn Android stýrikerfisins og getur þú nálgast þar öll vinsælustu „appin“.
- Gott er stilla snertiflöt skjásin fyrir þína notkun með hugbúnaði sem annaðhvort fylgir tölvu eða sækja „Screen Calibration“ frá „Market“
- Til að stilla yfir á annað lyklaborð er þrýst á og haldið inni „Settings“ hnapp til að stilla á milli lyklaborða.
- Hægt er að fylgjast með hugbúnaðaruppfærslum á heimasíðu framleiðanda. Hafið þó í huga að varasamt er að uppfæra hugbúnað án þess að lesa ítarlega yfir leiðbeiningar og er mælt með að taka öryggisafrit áður en uppfærsla er framkvæmd.
- Til að stilla tungumál á lyklaborði er farið í „Language and Keyboard“ og farið í „Smart Keyboard Pro Settings“ svo í „Language“, síðan í „Current Language“ og þar valið viðeigandi tungumál
- Sum „apps“ bjóða upp á að halda þeim opnum á forsíðu spjaldtölvu með því að þrýsta á ónotað skjáborð og halda inni í 3 sekúndur, þá kemur upp valmynd sem gerir þér kleift að bæta við „widget“ á skjáborð.
- Ef vandamál kemur upp við þráðlausa nettengingu við Tompson Router frá Símanum þarf að breyta öryggisstillingu úr WPA/WPA2 í WEP. Hafa skal samband við þjónustuborð símans varðandi frekari aðstoð.
Fyrir þá sem eiga Playtab2 Pro 7“ Spjaldtölvu:
- „Widgets“ virka eingöngu á fyrstu skjámynd tölvunnar og þarf að þrýsta á skjáflöt milli „Settings“ og „Home“ til að fá upp valmynd fyrir skjáborð.
- Til að endurstilla skjá þarf að fara í „Settings“ síðan „Touch Panel Calibration“ og fylgja leiðbeiningum þangað til skjár er endurstilltur.
Ef einhverjar fleiri spurningar vakna er hægt að heyra í okkur símleiðis eða í gegnum e-mail:
Verslun: 563-6900 og sala@tolvutek.is eða Þjónustudeild: 563-6990 og verk@tolvutek.is
Opnunartímar
Virka daga 10:00-18:30
Laugardaga 11:00-16:00