Vöruflokkar
Skilmálar Tölvuteks
Tveggja ára neytendaábyrgð er á búnaði öðrum en rafhlöðum og rekstrarvöru. Tölvutek býður eins árs ábyrgð á rafhlöðum í fartölvur.
Sé nóta skráð á fyrirtæki er eins árs ábyrgð á búnaði öðrum en rekstrarvöru. Ábyrgð telst til framleiðslu- eða efnisgalla á vörum. Kaupnóta er ábyrgðarskírteini og skal því geyma.
Tölvutek er með 100% Pixlaábyrgð á nýjum LCD skjám svo ef gallaður pixell reynist vera í skjá hefur viðskiptavinur 14 daga frá kaupdegi til að gera athugasemd og fá honum skipt út.
Gæða- og umhverfisstefnur eru virkar í Tölvutek og má lesa nánar um þær með því að fara í "Um okkur" í valmynd hér fyrir ofan.
Vinsamlegast athugið að öll verð á vefnum er birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl.

